Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup, sem var gerð fyrir RÚV, vill 67% landsmanna að stjórnvöld felli Icesave-lögin úr gildi og hefji samningaviðræður að nýju. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarps.
Þá kom fram að aðeins röskur þriðjungur svarenda búist við að ríkisstjórnin lifi út kjörtímabilið. Tæpur helmingur geri ekki ráð fyrir því.
Rösk
60% telja að ákvörðun foretans, sú að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð
vegna Icesave, hafi slæm áhrif á þjóðarhag. Rúm 20% telja að ákvörðunin
hafi hvorki góð né slæm áhrif. 17% telja að það hafi góð áhrif á
þjóðarhag að forsetinn hafi vísað málinu til þjóðarinna, að því er fram kom í fréttum Sjónvarps.
Skv. könnuninni myndi meirihluti landsmanna samþykkja Icesave lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Næstum níu af hverjum tíu gera ráð fyrir að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave ríkisábyrgðina, fari hún fram. Icesave ríkisábyrgðin yrði samþykkt sé að marka könnunina. Ríflega helmingur myndi kjósa með Icesave lögunum. Færri eða 41% myndu kjósa á móti þeim, að því er kom fram í fréttum Sjónvarps.
Capacent gerði könnunina á netinu í gær og í dag. Tólfhundruð manns voru spurðir og 64% þeirra svöruðu.