Landinn virðist hafa ákveðið að leggja áherslu á hrausta sál í heilbrigðum líkama sem mótleik við alltumlykjandi kreppunna undanfarið ár. Í öllu falli virðist skrokkurinn ekki vera vanræktur um þessar mundir.
Í World Class fjúka kaloríurnar sem aldrei fyrr en stöðin fékk 1,5 milljónir heimsókna á síðasta ári. Þá virðist vera 20% betri nýting á líkamsræktarkortum hjá þeim sem eru í áskrift að þeim.