Sækist eftir 5. sæti

Þorkell Ragnarsson
Þorkell Ragnarsson

Þorkell Ragnarsson sölufulltrúi sækist eftir 5. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga í Reykjavík.

Þorkell hefur starfað sem sölufulltrúi hjá Remax fasteignarsölu í rúm sex ár. Hann er í stjórn íbúasamtakanna Betra Breiðholts og situr í hverfisráði Breiðholts.

Þorkell gekk í Sjálfstæðisflokkinn árið 1985. Hann hefur setið sem formaður félags sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi frá 1995 og á sama tíma í stjórn fulltrúaráðsins Varðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert