Norðurlönd verða að hjálpa Íslendingum. Þetta segir Line Barfod, þingmaður danska Einingarflokksins og fulltrúi í forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Greint er frá þessu á vef Norðurlandaráðs.
„Norðurlöndin eiga að láta til sín taka og sýna íslensku þjóðinni samstöðu. Við ættum að bjóða þeim lán á ásættanlegum kjörum og almennt aðstoða íslenska þjóð við að byggja upp íslenskt efnahagslíf", skrifar Line Barfod á vefsíðu Einingarflokksins, Enhedslisten.dk
Line Barfod segir óréttlátt að dæma íslensku þjóðina til fátæktar, rústa heilbrigðis- og menntakerfi landsins, einvörðungu til að tryggja hraðar greiðslur til hollenskra og breskra spákaupmanna.
Hún vill að Norðurlöndin gangi til samninga við Íslendinga.
„Ríkisstjórnir
norrænu ríkjanna hafa hingað til krafist þess að Íslendingar ljúki samningum við
Breta og Hollendinga áður en komi til lánafyrirgreiðslu frá Norðurlöndum. En
skilyrðin sem Bretland og Holland setja eru svo ósanngjörn að Norðurlöndin ættu
að víkja frá þeim og í stað þess gera milliliðalaust sanngjarnan samning við
Íslendinga", segir danski stjórnmálamaðurinn.
Line Barfod ætlar að taka
málið upp við danska fjármálaráðherrann og biðja hann um að hefja máls á þessu
við norræn starfssystkin sín.