Situr fastur í Haukadalsá

Bílstjóri situr fastur í Haukadalsá.
Bílstjóri situr fastur í Haukadalsá. mbl.is

Bíll situr fastur í Haukadalsá og bílstjórinn uppi á þaki hans. Bíllinn er talinn hafa pompað í gegnum ís, en Björgunarsveit Biskupstungna og björgunarsveitin Ingunn eru á  leiðinni á staðinn. Nokkuð hlýtt er í veðri og segja björgunarsveitamenn mikið vera í ánni. Bílinn sé umleikinn vatni, en ekki er talið að ökumaðurinn sé í hættu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert