Vélamaður brenndist alvarlega um borð í ferjunni Norrænu skömmu eftir að skipið fór frá Esbjerg í Danmörku á föstudag. Maðurinn var að hreinsa ketil í vélarrúminu þegar slysið varð, að því er kemur fram í færeyskum fjölmiðlum.
Þyrla frá danska sjóhernum sótti manninn og flutti hann á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn.
Færeyska vinnueftirlitið mun rannsaka slysið þegar skipið kemur til Þórshafnar á morgun.