Verið er að setja á hóp stýrihóp sem á að vinna að stefnumótun fyrir Landspítalann næstu fimm árin, en verkinu á að ljúka fyrir páska. Þetta kemur fram í mánudagspistli Björns Zoëga, forstjóra spítalans.
„Það er
ljóst að þetta þarf að gera svo að starf okkar verði enn markvissara,
ekki bara á þessu ári heldur líka á næstu árum. Allt starfsfólk mun fá
tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en þessari
vinnu lýkur,“ segir Björn í pistlinum.