Ný bygging HR tekin í notkun

Ný bygging Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.
Ný bygging Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.

Háskólinn í Reykjavík flytur í nýja byggingu í Nauthólsvík í dag. Nemendur og kennarar skólans söfnuðust saman við aðalbyggingu skólans í Ofanleiti 2, kl. 9:15 og gengu fylktu að nýrri byggingu HR í Nauthólsvík.

Þar flytja Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, Svafa Grönfeldt, rektor HR, Ari Kristinn Jónsson, verðandi rektor HR og Sunna Magnúsdóttir, formaður Stúdentafélags HR, stutt ávörp.

Gestum verður boðið að ganga um bygginguna og skoða hana, en allir nemendur og starfsmenn fá afhent kort af byggingunni þegar þeir koma í hús. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá kl. 11:10.

Árið 2006 var ákveðið að ráðast í nýbyggingu Háskólans í Reykjavík og var skólanum fundinn staður í Nauthólsvík, við rætur Öskjuhlíðar.

Þrjár deildir HR af fimm flytja í nýbygginguna núna, tækni- og verkfræðideild, tölvunarfræðideild og viðskiptadeild. Lagadeild og kennslufræði- og lýðheilsudeild flytja svo í sumar og þá verður starfsemi HR öll undir einu þaki.

Um 2.300 nemendur og 200 kennarar flytja núna í Nauthólsvík, en alls eru um 3.000 nemendur skráðir í nám við HR.

Upphaflega var gert ráð fyrir að byggingin yrði 37.000 fermetrar. Í ljósi breytinga á efnahagsástandi Íslands hefur byggingu 2ja smærri álma verið frestað um óákveðinn tíma. Sá hluti sem nú verður tekinn í notkun er um 23.000 fermetrar og síðar á þessu ári verður 7.000 fermetra álma tekin í notkun og telst skólinn þá fullbyggður miðað við núverandi stöðu og áætlanir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert