Alls mældust 360 þúsund tonn af loðnu í leiðangri hafrannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar sem lauk í nótt. Þar af mældist hrygningarstofninn um 355 þúsund tonn.
Út af Austfjörðum mældust 180 þúsund tonn, allt hrygningarloðna. Út af Norðausturlandi mældust tæp 120 þúsund tonn, mest hrygningarloðna. Út af vestanverðu Norðurlandi mældust 61 þúsund tonn, þar af 56 þúsund tonn af hrygningarloðnu.
Aflaregla við loðnuveiðar byggir á að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar. Hafrannsóknastofnun segir, að þessar mælingar á stærð hrygningarstofnsins séu undir því magni og því leggi stofnunin til að loðnuveiðar verði ekki hafnar að svo stöddu.
Stofnunin segir, að aðstæður til mælinga hafi verið góðar frá því að rannsóknaskipin fóru frá Reykjavík að undanskildu því að hafís hamlaði leit á töluvert stóru svæði vestur og norður af Vestfjörðum, sem kunni að hafa haft áhrif á niðurstöður.
Árni Friðriksson verður áfram við athuganir og mælingar á loðnustofninum ásamt leitarskipi sem væntanlegt er á miðin út af Norðurlandi á morgun, miðvikudag.