Selja fisk fyrir 22 milljarða

Verðmæti hráefnis jókst á síðasta ári.
Verðmæti hráefnis jókst á síðasta ári. mbl.is / Kristinn

Fisk­ur að verðmæti tæp­lega 22 millj­arða kr. var seld­ur í gegn um upp­boðskerfi Reikni­stofu fisk­markaðanna á síðasta ári. Er það tæp­lega 29% meira en árið á und­an sem einnig var metár.

Magnið var með því mesta sem selt hef­ur verið og meðal­verð hrá­efn­is­ins hef­ur aldrei verið hærra, að því er fram kem­ur á vef RF.

Seld voru liðlega 103 þúsund tonn af fiski á ár­inu 2009. Það er tæp­lega 10% aukn­ing frá ár­inu á und­an. Magnið er það fjórða mesta frá upp­hafi Reikni­stofn­un­ar fisk­markaðanna, ef loðna er ekki tal­in með.

Meðal­verðið á ár­inu 2009 var 210,50 kr. Það hef­ur ekki áður farið yfir 200 krón­ur á kíló. Þetta sam­svar­ar 17,2% hækk­un.

Fimmtán fisk­markaðir um allt land nýta upp­boðskerfi Reikni­stofn­un­ar fisk­markaðanna.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert