SOS Barnaþorpunum hefur ekki tekist að afla upplýsinga um afdrif barna í barnaþorpunum tveimur sem samtökin reka á Haítí og margir Íslendingar styðja.
Í kvöld tókst að ná sambandi við framkvæmdastjóra SOS Barnaþorpanna á
Haítí. Hann segir alla starfsmenn landsskrifstofunnar í Port-au-Prince vera
heila á húfi, að því er fram kemur í frétt á vef samtakanna.
Framkvæmdastjóranum hefur ekki tekist að ná sambandi við SOS Barnaþorpin tvö þar sem sími virkar ekki og vegir eru lokaðir.
Landsskrifstofan í höfuðborginni skemmdist í skjálftanum og starfsfólkið hefur ekki komist heim til sín. Sumir starfsmannanna hafa frétt af skemmdum á eigin heimilum án þess þó að hafa náð sambandi við sína nánustu.
Upptök skjálftans voru aðeins 10 km frá Port-au-Prince þar sem landsskrifstofan er staðsett. Annað barnaþorpanna og samfélagsmiðstöð SOS eru 15 km fyrir utan borgina.
SOS Barnaþorpin hafa verið með öflugt hjálparstarf fyrir börn á Haítí undanfarin ár.
Samtökin reka tvö barnaþorp, tvö ungmennaheimili, tvo grunnskóla, einn verknámsskóla og fjórar samfélagsmiðstöðvar á Haítí. um 570 börn og ungmenni eru á framfæri SOS í landinu og um 2600 manns njóta stuðnings Fjölskyldueflingar SOS.