Leit hefur verið hætt við Arnarnesvog, en tilkynning barst lögreglu um rekald í sjónum um kl. 14:30. Lögreglumenn og björgunarsveitarmenn fóru á vettvang, auk þess sem Landhelgisgæslan aðstoðaði við leitina. Ekkert fannst og hefur leit því verið hætt.