Lögreglan æfir nú nýja tækni við
handtökur. Aðferðinni er ætlað til aukinnar verndar bæði fyrir lögreglumenn og
hina handteknu.
Tveir norskir lögreglumenn sjá um að þjálfa þá íslensku í þessari nýju tækni. Þeir sem þjálfaðir eru nú er svo ætlað að kenna starfsbræðrum og systrum sínum tæknina.