Mannanafnanefnd hefur hafnað kvenmannsnöfnunum Bót og Kelly sem millinöfnum. Nöfnin Bót og Kellý hafa hins vegar verið færð á mannanafnaskrá sem eiginnöfn.
Nefndin segir, að Bót hafi áunnið sér hefð sem eiginnafn kvenna og sé því ekki heimilt sem millinafn. Vísar nefndin til þess, að nafnið komi fyrir í Landnámu sem kvenkyns eiginnafn.
Þá segir nefndin, að Kelly geti ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls miðað við að nafnið sé borið fram Kellý. Nefndin ákvað hins vegar að úrskurða nafnmyndina Kellý á mannanafnaskrá sem eiginnafn.