Stærsti timburstafli á Íslandi

Bolirnir eru nokkuð gildir, enda orðin 50 ár síðan trjánum …
Bolirnir eru nokkuð gildir, enda orðin 50 ár síðan trjánum var plantað á Stálpastöðum.

Við járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga stendur nú gríðarlega stór timburstafli. Timbrið, sem alls er um 1.000 rúmmetrar, bíður eftir að verða kurlað og notað sem kolefnisgjafi í járnblendiverksmiðjunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skógrækt ríkisins.

Skógrækt ríkisins skrifaði í sumar undir samning við verksmiðjuna um 1.000 tonn af grisjunarviði sem nota á í stað jarðefnaeldsneytis í tilraunaskyni.

Í staflanum eru nú rúmlega 800 tonn af timbri og því von á tæplega 200 til viðbótar á næstu vikum. Timbrið kemur út Stálpastaðaskógi í Skorradal þar sem mikið grisjunarátak hefur staðið yfir í vetur.

Stærsti hluti staflans er sitkagreni en auk þess er í honum að finna stafafuru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert