Von við vonlausar aðstæður

Loftmynd sem sýnir dómkirkju í Port-au-Prince sem eyðilagðist í jarðskjálftanum.
Loftmynd sem sýnir dómkirkju í Port-au-Prince sem eyðilagðist í jarðskjálftanum. Reuters

„Það er skrítið að upplifa von í augum íbúa í aðstæðum sem virðast vonlausar,“ skrifar Íslendingurinn Halldór Elías Guðmundsson djákni, sem er staddur á Haítí, á vefinn tru.is. „Hvenær við komumst héðan er þó enn óvíst en vegurinn frá Jacmel þar sem við höldum til er enn ófær,“ segir hann ennfremur.

„Aðfararnótt miðvikudags lágum við á jörðinni við litla flugbraut í Jacmel, án teppa með ferðatöskur sem kodda og hlustuðum á þúsundir íbúa Haiti sem höfðu misst allt, syngja lofsöngva, biðja, gráta og aðstoða hvort annað burtséð frá litarhafti, stétt eða stöðu. Við höfum notið ótrúlegrar vináttu, gestrisni og samfélags með fólki í erfiðustu aðstæðum sem hægt er að hugsa sér. Það er skrítið að yfirgefa vini í aðstæðum sem þessum en við sem ferðumst hér saman erum meðvituð um að vera okkar hér núna er byrði á góðum vinum sem eiga mikið verk fyrir höndum,“ skrifar Halldór Elías.

Hann hvetur fólk jafnframt til að leggja sitt af mörkum og styrkja hjálparstarf Rauða Krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar, SOS barnaþorpa, UNICEF og Barnaheilla.

Sjá nánar hér.

Halldór Elías Guðmundsson.
Halldór Elías Guðmundsson.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert