Olís hefur hækkað verð á eldsneyti. Þannig hefur verð á bensíni hækkað um 3 krónur lítrinn í dag og kostar nú 199,20 krónur í sjálfsafgreiðslu hjá félaginu. Lítri af dísilolíu kostar nú 197,90 krónur og hækkaði einnig um 3 krónur. Önnur olíufélög hafa ekki hækkað eldsneytisverð enn sem komið er.