Þráinn Bertelsson alþingismaður segir þjóðarnauðsyn að stjórnmálaflokkarnir hætti að rífast um Icesave og snúi sér að því að leysa málið. Hann segir að rökræður sem átt hafi sér stað á fundum formanna flokkanna ekki benda til þess að menn séu leysa málið.
Þráinn segir að nú snúist málið um hvort hægt sé að draga Breta og Hollendinga að samningaborðinu á nýjan leik án nokkurra skilyrða.
„Það er þjóðarnauðsyn að stjórnmálaflokkarnir hætti að rífast um þetta mál. Ég
er ekki að fara fram á að stjórnmálaflokkarnir sem bera ábyrgð á þessu
máli viðurkenni ábyrgð sína. Ég er bara að fara fram á að þeir sjái
ábyrgð sína og snúi sér að því að leysa málið.“