Útgerðarmenn, sjómenn, fiskvinnsla og bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum standa fyrir fundi á fimmtudagskvöld til að mótmæla m.a. fyrningarleið og útflutningsálagi.
Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að boðuð breyting á skötuselskvóta ein og sér kosti hagkerfi Eyjanna um 400 milljónir króna á ári og útflutningsálagið kosti samfélagið í Vestmannaeyjum um 200 milljónir. „Fyrningarleiðina þarf ekki að ræða því fyrirtækin og samfélagið hér færu lóðbeint á hausinn með slíkum aðgerðum,“ segir Elliði. Yfirskrift fundarins er „Fyrnum fyrningarleiðina“.
Sjá nánari umfjöllun um viðbrögð Eyjamanna í Morgunblaðinu í dag.