Landvirkjun og Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, hafa gert samkomulag um að hann láti af störfum, en hann hefur undanfarin 18 ár starfað hjá félaginu.
Á heimasíðu fyrirtækisins segir, að framundan séu breytingar á starfsumhverfi Landsvirkjunar sem megi m.a. rekja til ástands á fjármálamörkuðum og veikingar á stöðu íslenska ríkisins og félagsins á þeim markaði. Brýnt sé að efla og breyta ímynd Landsvirkjunar bæði gagnvart fjármögnunarfyrirtækjum, fjölmiðlum og almenning og sé samkomulagið við Þorstein liður í því.