7300 milljarða kröfur í Kaupþing

Kaupþing
Kaupþing mbl.is/Ómar

Slitastjórn Kaupþings banka hf.hefur birt kröfuskrá á vefsvæði fyrir kröfuhafa. Alls var 28.167 kröfum lýst í Kaupþing innan kröfulýsingarfrests sem lauk 30. desember sl. Lýstar kröfur í bankann bárust frá 119 löndum, þar af var ríflega helmingur vaxtakröfur frá Þýskalandi.

Meðal stærstu kröfuhafa eru innlendir aðilar, innlendar og erlendar bankastofnanir, auk ýmissa erlendra fjárfestingarsjóða, s.s. framtakssjóða, verðbréfasjóða og vogunarsjóða.

Heildarfjárhæð lýstra krafna í Kaupþing nam 7.316 milljörðum króna miðað við gengi Seðlabanka Íslands þann 22. apríl 2009. Heildarfjárhæð lýstra krafna er hærri en skuldir samkvæmt efnahagsreikningi miðað við 30. júní sl.

Samkvæmt upplýsingum frá slitastjórn Kaupþings segir, að skýringar á þessu megi rekja til oflýstra krafna vegna innstæðna sem Kaupþing hefur þegar greitt, tví- og þrílýsinga vegna ýmissa innstæðna og skuldabréfaútgáfu bankans og krafna sem falla utan efnahaggsreiknings, s.s. skaðabótakrafna og ábyrgðarkrafna. Auk þess væri ítrustu kröfum jafnan lýst. Samanlögð fjárhæð vegna framangreindra atriða næmi a.m.k. 2.900 milljörðum króna.

Slitastjórn hefur tekið afstöðu til rúmlega 16.000 krafna eða u.þ.b. 57% af heildarfjölda lýstra krafna. Langflestar þeirra eru vaxtakröfur frá Þýskalandi, enda bárust þær jafnt og þétt á kröfulýsingartímanum. Hins vegar bárust kröfur á banka og fjármálafyrirtækja flestar undir lok frestsins.

Kröfuskráin er aðgengileg kröfuhöfum á lokuðu vefsvæði og á skrifstofu sltiastjórnar að Borgartúni 26. Fundur verður haldinn með kröfuhöfum föstudaginn 29. janúar á Hilton Hotel Nordica þar sem kröfuskráin og afstaða slitastjórnar til lýstra krafna, að svo miklu leyti sem hún liggur fyrir, verður til umræðu.

Framhaldsfundur með kröfuhöfum verður haldinn 18. maí 2010 þar sem kynnt verður afstaða til þeirra krafna sem þá verður búið að fara yfir. Gert er ráð fyrir þriðja fundinum með kröfuhöfum vegna afstöðu til krafna í haust.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert