„Ég er ótrúlega stolt af honum. Það er ótrúlegt að fólk sé tilbúið að fórna sér svona fyrir aðra“ sagði Ragnheiður Magnúsdóttir, eiginkona eins björgunarsveitarmannanna sem komu til landsins í nótt. Þeim var vel fagnað við komuna til Keflavíkur í nótt.
Aðstandendur biðu spenntir í flugskýli á Keflavíkurflugvelli eftir vél Iceland Express sem sótti hópinn til Haítí.