Selja muni úr þrotabúi SPRON

Slitastjórn SPRON selur lausafjármuni úr þrotabúi sparisjóðsins í geymsluhúsnæði að Kistumel 14 á Kjalarnesi á laugardag og sunnudag næstkomandi milli kl. 11 og 17.
 
Á boðstólum eru ýmsar skrifstofuvörur, tölvur og raftæki og einnig húsbúnaður. Sem dæmi má nefna borð, skápa, stóla, sófa, ísskápa, örbylgjuofna, borðbúnað o.fl. Vörurnar hafa verið notaðar í útibúum SPRON á höfuðborgarsvæðinu, sumar eru nýjar, aðrar eldri. Í tilkynningu segir, að almennt sé um mjög vandaðar vörur að ræða.
 
Vörurnar eru boðnar á góðu verði og hægt er að greiða með greiðslukorti.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert