Fögnuður í Kolaportinu

Kolaportið.
Kolaportið. Billi/Brynjar Gunnarsson

Mikill fögnuður verður í Kolaportinu í dag í tilefni þess að nákvæmlega tvö ár eru liðin frá því framtíð Kolaportsins var tryggð en til stóð að breyta því í bílastæðahús.

Viljayfirlýsing um að bjarga Kolaportinu var undirrituð í borgarstjóratíð Dags B. Eggertssonar. Dagur ætlar því að standa fyrir dagskrá í Kolaportinu kl. 14 í samstarfi við Kolaportið. Meðal þeirra sem koma fram eru Ragnheiður Gröndal og Felix Bergsson.

Dagur B. Eggertsson var ánægður með björgun Kolaportsins fyrir 2 …
Dagur B. Eggertsson var ánægður með björgun Kolaportsins fyrir 2 árum. Friðrik Tryggvason
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert