Sjálfstæðismenn í Reykjavík efna til prófkjörs í dag vegna sveitastjórnakosninganna í vor. Átján eru í framboði, sjö konur og 11 karlar. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sækist ein eftir fyrsta sætinu.
Fimm sækjast eftir 2. sæti listans. Prófkjörið er opið öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík sem þar eru búsettir.
Nánari upplýsingar um prófkjörið er að finna hér.