Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur stjórn og stjórnarandstöðu til þess að standa saman um skilmála í viðræðum við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um skuldbindingar Tryggingasjóðs innistæðueigenda vegna Icesave-reikninga Landsbankans.
„Stjórnmálaflokkarnir þurfa að ná samkomulagi um nýja samningsskilmála og ná betri samningum en nú liggja fyrir. Brýn þörf er á víðtækri samstöðu um lausn þessa mikilvæga máls," segir í ályktuninni.