Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi Á-lista í bæjarstjórn Álftaness, lýsti því yfir í byrjun bæjarstjórnarfundar í dag, að Sigurður Magnússon, oddviti listans, talaði ekki fyrir hans hönd um sveitarstjórnarmál á Álftanesi.
Sigurður Magnússon sagði, að þetta væri gömul frétt því það hefði gerst í desember 2008 að bæjarfulltrúar Á-lista hefu óskað eftir því að Kristján tæki sér frí frá störfum í bæjarstjórn vegna tiltekins máls.