Boðað til blaðmannafundar hjá efnahagsbrotadeild

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 15:00. Tilefni blaðamannafundarins verður kynnt betur á fundinum en það tengist rannsókn máls hjá efnahagsbrotadeild, sem unnin er í samvinnu efnahagsbrotadeildar, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

Fundurinn er haldinn sameiginlega af fulltrúum efnahagsbrotadeildar, Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins, að því er fram kemur í fundarboði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert