Fundi lokið í Haag

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, átti í dag í Haag fund með fjármálaráðherrum Bretlands og Hollands. Með honum sátu fundinn þeir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari fundi en staða Icesave var rædd á fundinum.

„Aðilar munu nú meta stöðuna en á þessu stigi hefur ekki verið tekin ákvörðun um frekari fundi," segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert