Jóhanna: Vextir lækka en óvissa eykst

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í ávarpi á fundi Sóknaráætlunar 20/20 á Hótel Sögu í gær að verðbólga og vextir héldu áfram að lækka en um leið væri ljóst að óvissa í efnahagsmálum hefði aukist vegna frestunar á því að leysa deiluna um bætur til innistæðueigenda útibúa Landsbankans erlendis.

Vaxtalækkun nú hefði orðið mun meiri en 0,5% ef Icesave hefði verið afgreitt.

„Við erum að glata dýrmætum tíma og tafir á framkvæmd efnahagsáætlunar Íslands og AGS, frestun á áætlun um afnám gjaldeyrishafta og takmarkanir á aðgengi Íslands að alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum munu verða okkur afar dýrkeypt ef fram heldur sem horfir", sagði forsætisráðherra, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Meðan efnahagslíf á heimsvísu er á leið upp úr öldudalnum eigum við á hættu að keyrast enn lengra niður í öldudalinn. Seðlabankinn varar við því að linni óvissunni ekki á næstu vikum séu horfur á því að fjárfesting taki seinna við sér og samdráttur landsframleiðslu og atvinnuleysi verði meiri en nú er spáð. Í þessu sambandi verður að muna að við eigum gífurlega mikið undir því að stýring á skuldum ríkisins takist vel á næstu árum og hægt verði að halda utanum skuldirnar á viðráðanlegum kjörum."

Forsætisráðherra sagði að þrátt fyrir mikla erfiðleika hefði samt miðað áfram á mörgum sviðum og þar nefndi hún  sérstaklega að bankarnir ættu nú að vera í stakk búnir til þess að endurskipuleggja fjárhag lífvænlegra fyrirtækja í landinu.

„Það skiptir og miklu máli upp á atvinnustigið í landinu að stór verkefni komist í gang í byggingageiranum vegna þess að hann hrundi þegar þenslunni lauk. Það er hins vegar eðli stórframkvæmda að þar er um flókin ferli að ræða sem við ríkjandi aðstæður í efnahagsmálum er þrautin þyngri að ráða fram úr. Öll þau verkefni sem fjallað er um í Stöðugleikasáttmálanum, hvort sem um er að ræða endurnýjun í Straumsvík, undirbúning álvers í Helguvík, gagnaver Verne Holding, nýjan Landspítala og Samgöngumiðstöð og samgönguframkvæmdir þokast þó áfram en afar brýnt er þau nái fram að ganga. Með úrskurði umhverfisráðherra vegna Suðvesturlínu er enn einni óvissunni eytt í þessum efnum," samkvæmt tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert