Þrír stjórnarmenn í VR hafa sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af ályktun meirihluta stjórnar VR sem birt var í gær. Stjórnarmennirnir þrír segja að þeim hafi verið torveldaður aðgangur að upplýsingum um fjárreiður félagsins og að meðferð fjármuna hafi verið sveipaður leyndarhjúpi.
Stjórnarmennirnir þrír neita því að vera félagar í samtökunum Nýju Íslandi, eins og ýjað sé að í tilkynningunni. Þeir hafi hins vegar komið skoðunum sínum á framfæri á opnum fundum á Austurvelli.