Skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) í Reykjanesbæ verður lokað þann 1. maí nk., að sögn fréttavefjar Víkurfrétta. Þetta mun koma fram í uppsagnarbréfi til starfsmanna á skurðstofum. Víkurfréttir segja að átta starfsmenn á skurðstofum HSS muni missa vinnuna.
Fleiri starfsmenn HSS mega vænta uppsagnarbréfa og herma heimildir Víkurfrétta að allt að 14 starfsmönnum verði sagt upp til að ná markmiðum um þann niðurskurð sem stofnunin þurfi að sýna.
Víkurfréttir segja að Suðurnesjamenn muni ekki taka þessum niðurskurði Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja þegjandi. Verið sé að færa þjónustuna áratugi aftur í
tímann og vísa sjúklingum til Reykjavíkur.