Námstækifæri fyrir 700 unga atvinnuleitendur

Árni Páll Árnason með sápuþvottapokann góða.
Árni Páll Árnason með sápuþvottapokann góða.

Vinnumálastofnun hefur samið við Kvasir, samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, um að annast kennslu, starfsþjálfun vegna atvinnutengds náms, stuðning og ráðgjöf fyrir allt að 700 unga atvinnuleitendur. Áætlað er að um 300 milljónum króna verði varið til verkefnisins. Markmið samningsins er að tryggja virkni- og námsúrræði fyrir ungt fólk án atvinnu sem er tryggt í atvinnuleysistryggingakerfinu.

Vinnumálastofnun velur einstaklinga í verkefnið og tilkynnir viðkomandi símenntunarstöðvum um fjölda nemenda í námskeiðum og verkefnum. Fylgst verður með þátttöku nemenda og ef einhver hættir eða er látinn hætta verður það tilkynnt til Vinnumálastofnunar.

Um síðustu áramót hrintu félags- og tryggingamálaráðuneytið og Vinnumálastofnun af stað stóru átaksverkefni, Ungt fólk til athafna, sem miðar að því að skapa yfir 2.000 ný náms- og starfstækifæri fyrir ungt fólk á þessu ári. Þegar hafa verið tryggð úrræði fyrir hátt í 1.000 einstaklinga með samningnum við Kvasir og samningi við Rauða kross Íslands sem undirritaður var í gær.

Í fréttatilkynningu frá Félagsmálaráðuneytinu segir að ráðuneytið og Vinnumálastofnun hafi sett það markmið að enginn verði atvinnulaus lengur en þrjá mánuði án þess að fá tilboð um vinnumarkaðsúrræði af einhverju tagi. Þessu markmiði skal náð gagnvart fólki yngra en 25 ára fyrir 1. apríl 2010 og 1. september 2010 fyrir aðra.

Í dag voru útskrifaðir 20 nemendur úr hópi ungs fólks án atvinnu sem hafa verið í þriggja vikna námi hjá Frumkvöðlasmiðjunnar á Akranesi sem er hluti af samstarfi Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands og Vinnumálastofnunar. Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi segir að nemendurnir hafi sýnt náminu mikinn áhuga og ljóst að það hafi nýst þeim vel. Þrjár viðskiptahugmyndir frumkvöðla munu verða að veruleika á næstunni með stofnun smáfyrirtækja. 

Inga Dóra færði svo Árna Páli Árnasyni, félags- og tryggingamálaráðherra sýnishorn af verkefnum nemenda að þeirra ósk, þar á meðal forláta sápuþvottapoka úr ull.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert