Suðurnesjamenn halda borgarafund

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is/Helgi Bjarnason

Hátt í 5.500 manns hafa nú skráð sig á undirskriftalista Suðurnesjamanna vegna mótmæla gegna niðurskurði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Undirskriftirnar verða afhentar heilbrigðisráðherra á borgarafundi sem haldinn verður á þriðjudaginn.

Yfirlýsing mótmælana sem fólk er beðið að skrifa undir er eftirfarandi, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta:

Nú hefur komið í ljós að skurðstofu HSS verður lokað 1. maí næstkomandi vegna niðurskurðarkröfu heilbrigðisráðuneytisins. Einnig verður lögð niður vaktþjónusta heilsugæslulækna um helgar frá og með 1. maí næstkomandi. Þá hefur fleira starfsfólki verið sagt upp störfum og allar líkur eru á því að sykursýkismóttöku verði lokað um næstu mánaðamót og starfsfólki sálfélagsþjónustu einnig sagt upp. Fyrirhugað er að loka fyrir rannsóknir sem gerðar eru í nýju tölvusneiðmyndatæki, sem nýlega var tekið í notkun og var gjöf frá Kaupfélagi Suðurnesja.
Því mótmælum við, íbúar Suðurnesja, hver kyns skerðingu á þjónustu sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitir okkur og teljum slíkt ógna okkar lífsgæðum.

Sólarhringur er nú eftir af undirskriftarsöfnuninni, en borgarafundurinn verður haldinn á sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja kl. 17:00 á þriðjudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert