Vopnað rán var framið í verslun í Hlíðunum í Reykjavík laust fyrir klukkan sjö í kvöld. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík kom maður inn í verslunina vopnaður hnífi og ógnaði starfsmanni, sem var einn í versluninni.
Ræninginn hafði á brott með sér einhverja fjármuni úr kassa verslunarinnar. Maðurinn hefur ekki fundist, en eftirlitsmyndavélar eru í versluninni og er því vonast til að unnt verði að hafa hendur í hári hans.