MP Banki flytur í dag höfuðstöðvar sínar í Ármúla 13a og opnar þar jafnframt nýtt útibú.
Fram kemur í tilkynningu frá bankanum, að með auknu umfangi á starfseminni hafi starfsmönnum fjölgað um tæp 60% á einu ári, eða úr 51 í byrjun árs 2009 í 81 nú. Því hafi veirð nauðsynlegt að finna stærra og hentugra húsnæði undir starfsemi
höfuðstöðva bankans.