Fréttaskýring: „Heilt ár farið í súginn“

Fulltrúar stjórnmálaflokkanna á fundi í gærmorgun.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna á fundi í gærmorgun. mbl.is/Golli

Stjórn og stjórnarandstaða náðu í gærmorgun saman um þann grunn sem notaður verður í viðræðum við Breta og Hollendinga um að taka upp Icesave-samningana. Fjármálaráðherra er vongóður um að málið leysist að endingu. Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna segjast sáttir með þann tón sem hefur verið í viðræðum leiðtoganna á milli en of snemmt sé að reka upp fagnaðaróp.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir grunninn byggjast á því, að ríkisstjórnin hafi í fyrsta skipti horfst í augu við það, að það þýði ekkert að berjast fyrir niðurstöðu í málinu sem enginn stuðningur sé fyrir á Íslandi. Næsta verkefni sé að koma þeim skilaboðum áleiðis til stjórnvalda í Bretlandi og Hollandi.

Sátt varð að nást

„Öll vinnan í þessu máli er enn eftir og í sjálfu sér höfum við ekki unnið neitt afrek með því að komast að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að reyna að verja hagsmuni okkar.

Fyrst verður einhverjum áföngum náð í þessu máli þegar viðsemjendur okkar lýsa vilja til þess að koma fram af sanngirni og sýna þeim sjónarmiðum, sem við ætlum að kalla fram, skilning. Ef það tekst þá getum við farið að tala um að eitthvað sé að gerast í þessu Icesave-máli.“

Sáttur með farveginn

Um að gera að fá ráðgjafa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, segir að þegar búið sé að stilla saman strengi, meta helstu styrkleika og hugsanlega veikleika verði væntanlega farið í viðræður um framhaldið. „Aðalatriðið er að reyna að nýta sem best þær eignir sem eru þrátt fyrir allt til staðar í þrotabúi bankans til þess að standa undir þessu, svo skuldin lendi ekki á íslenskum skattgreiðendum.“

Spurður út í þá sátt sem náðst hefur og hvort hún sé sigur fyrir stjórnarandstöðuna segir Sigmundur: „Það er best að vera ekki með neinar yfirlýsingar um slíkt.“

Virtur á sviði þjóðarskuldbindinga

Lee C. Buchheit er meðeigandi lögfræðistofunnar Cleary Gottlieb Steen & Hamilton í New York. Í samtali við Morgunblaðið í febrúar 2009 sagði Ársæll Valfells, lektor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, að Buchheit væri talinn einn virtasti lögfræðingur í heimi á sviði þjóðarskuldbindinga. Hann hefði m.a. verið fenginn til að semja fyrir hönd ríkja, sem lent hefðu í greiðsluþroti, um eftirgjöf þjóðarskulda.

Sem dæmi hefði hann unnið fyrir stjórnvöld í Rússlandi og Ekvador og verið sendur af bandarískum stjórnvöldum til Íraks til að aðstoða þá við að ná niður erlendum skuldum. Þá kom hann líka að lagalegri framkvæmd áætlunar til að bjarga bandarísku fjármálakerfi.

Buchheit var hér á Íslandi í ágúst í fyrra og fór þá m.a. á fund fjárlaganefndar Alþingis og lýsti þar þeirri skoðun að ótímabært væri að ræða skilmála Icesave-skuldar Íslands fyrr en ljóst væri hvað fengist fyrir eignir Landsbankans og hvað stæði þá eftir.

Lee C. Buchheit.
Lee C. Buchheit.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert