Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir eigendum ýmissa muna, sem sýnt þykir að séu stolnir munir úr innbrotum.
Birtar eru myndir af mununum á vef lögreglunnar og eru þeir, sem þá þekkja, vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Dalvegi 18 í Kópavogi í síma 444-1130.
Tekið skal fram að afhending muna fer fram gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi.