Koma eins af foringjum norskra Vítisengla til Íslands tengist án vafa fyrirhugaðri inngöngu íslenska vélhjólaklúbbsins MC Iceland í Hells Angels-glæpasamtökin. Þetta er ein ástæða þess að manninum var vísað úr landi.
Segir embætti ríkislögreglustjóra, að staða MC Iceland hafi nú gjörbreyst og opnað fyrir frekari hættu á sviði skipulagðrar brotastarfsemi.
Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra segir að ákvörðun um að vísa manninum frá landinu hafi byggst á mati lögreglu. Niðurstaða þess mats var eftirfarandi:
Forsendur mats lögreglu voru þessar:
Alls staðar þar sem Hells Angels hafa náð að skjóta rótum hefur aukin skipulögð glæpastarfsemi fylgt í kjölfarið. Skipulögð glæpastarfsemi beinist gegn almannahagsmunum enda hafa afbrot sem henni fylgja áhrif á samfélagið og öryggi almennings.
Fram hefur komið í íslenskum fjölmiðlum að MC Iceland (áður Fáfnir) hafi hlotið viðurkenningu sem stuðningsdeild Hells Angels á Íslandi. Fyrirliggjandi upplýsingar eru á þann veg að stefnt sé að því að vélhjólaklúbburinn MC Iceland fái fulla aðild að Hells Angels-samtökunum árið 2010. Nú þegar hafi orðið þáttaskil í starfsemi klúbbsins. Hann hafi náð lokastigi þess að verða fullgild og sjálfstæð deild í alþjóðasamtökum Hells Angels. Það þýði að staða klúbbsins hafi gjörbreyst og opnað fyrir frekari hættu á sviði skipulagðrar brotastarfsemi.
Inngönguferli MC Iceland hafi verið stýrt frá Hells Angels-samtökunum í Noregi. Uppbygging hinnar íslensku deildar Hells Angels hafi um flest verið í samræmi við forskriftir Hells Angels. Félagar í MC Iceland hafi gengist undir skilmála Hells Angels.
„Til þess að hljóta fulla aðild mun íslenski hópurinn þurfa að geta sýnt fram á að starfsemi og skipulag sé í samræmi við kröfur Hells Angels. Þetta eykur hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi af hálfu íslensku félaganna. Minnt er á að mjög algengt er að félagar í Hells Angels hafi hlotið refsidóma fyrir alvarleg afbrot og ljóst er að í röðum þeirra er að finna marga ofbeldismenn. Þetta á við um nokkra félaga í MC Iceland, Íslandsdeild samtakanna," segir ríkislögreglustjórai.
Embættið segir að með samstarfi við erlendar deildir Hells Angels hafi hópur manna hér á landi efnt til formlegrar samvinnu við aðila sem í mörgum tilfellum séu harðsvíraðir, þaulskipulagðir og hættulegir glæpamenn. Þau kynni og þau tengsl auki því hættu á að íslensku félagarnir taki upp aðferðir og starfshætti erlendra vítisengla. Raunar kunni slík krafa að koma fram af hálfu erlendu félaganna.
Í Danmörku hafi félagar í Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra mjög látið til sín taka í blóðugum átökum sem þar standa og tengd séu skipulagðri glæpastarfsemi innflytjendagengja og vélhjólamanna. Skálmöld ríki í höfuðborginni, Kaupmannahöfn, sem hafi kostað mannslíf og sé síst tengd stöðu þessara hópa á fíkniefnamarkaði.
Í febrúarmánuði 2009 var frá því greint í dönskum fjölmiðlum að ákveðið hefði verið að ráða til starfa 140 lögregluþjóna þar í landi sem eingöngu er ætlað að hefta glæpastarfsemi vélhjólamanna og gengja innflytjenda.
„Framhjá ofangreindu verður ekki horft þegar lagt er mat á þá hættu sem fylgja kann komu félaga í Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra hingað til lands. Á Norðurlöndum líta stjórnvöld á skipulögð glæpasamtök vélhjólamanna á borð við Hells Angels sem vaxandi samfélagsógn. Ríkislögreglustjórar Norðurlandanna hafa mótað þá skýru stefnu með stuðningi ríkisstjórna landanna að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi mótorhjólagengja. Embætti ríkislögreglustjóra á Norðurlöndum vinna í sameiningu að þessu markmiði. Ríkislögreglustjóri hefur frá árinu 2002 lagt fyrir lögreglustjóra á Íslandi að framfylgja þessari stefnu. Í samræmi við þetta hefur ítrekað komið til þess á undanliðnum árum að félögum í Hells Angels hafi verið meinuð landganga við komu sína til Íslands," segir í tilkynningu ríkislögreglustjóra. Það sé mat lögreglunnar að meina beri erlendum félögum í Hells Angels landgöngu m.a. með það að markmiði að sporna við fyrirhuguðu inngönguferli MC Iceland í Hells Angels.