Jafnréttisráð hefur sent frá sér
ályktun um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs þar sem skorað er á
Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskipatráð Íslands og Samtök atvinnulífsins að
beita áhrifum sínum til þess að ná sem fyrst fram markmiðum sínum um 40% hlut
kvenna í stjórnum fyrirtækja.
Í ályktunni er minnt á að Félag
kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins
hafi undirritað samstarfssamning 15.maí í fyrra. Markmið hans er að hlutfall hvors
kyns í forystusveit íslensks atvinnulífs verði sem næst 40% í árslok 2013.
„Samningsaðilar hafa undirstrikað nauðsyn þess að þetta markmið náist, enda benda
reynsla og kannanir til þess að það sé farsælast. Fulltrúar allra stjórnmálaafla
sem eiga fulltrúa á Alþingi skrifa undir samninginn og lýsa þannig stuðningi við
markmið hans.
Nú fer sá árstími í hönd þar sem gera má bragarbót.
Aðalfundir framundan og því kjörið tækifæri til breytinga. Jafnt kynjahlutfall í
stjórn íslensks atvinnulífs er mikilvægt skref í átt til jafnréttis og
atvinnulífi landsins til heilla.
Jafnréttisráð skorar því á alla sem
undirrituðu samstarfssamninginn að beita áhrifum sínum til að markmið
samningsins náist sem fyrst,“ segir í ályktun Jafnréttisráðs.