Fundu kannabisræktun á Seltjarnarnesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Seltjarnarnesi í gær. Segir lögreglan að við húsleit hafi fundust 80 kannabisplöntur.

Á sama stað var einnig lagt hald á tæplega 400 grömm af marijúana sem var tilbúið til sölu. Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað aðild sína að málinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert