Lögreglumaður sýknaður

Lög­reglumaður var í dag sýknaður af ákæru fyr­ir lík­ams­árás og brot í op­in­beru starfi með því að hafa beitt ekki beitt rétt­um aðferðum við hand­töku.

Lög­reglumaður­inn stýrði hóp þriggja lög­reglu­manna og nema lög­reglu­skól­ans sem var í starfs­námi. Þeir svöruðu til­kynn­ingu frá skemmti­stað í miðborg­inni en grun­ur lék á að maður vopnaður hnífi væri þar inn­an­dyra. 

Fyr­ir utan hittu þeir fyr­ir ung­an og kjaft­for­an mann, fórn­ar­lambið í mál­inu. Eft­ir nokkuð þóf var maður­inn hand­tek­inn og hon­um ekið út á Granda þar sem hann var skil­inn eft­ir. Var lög­reglumaður­inn ákærður fyr­ir að hafa á leiðinni út á Granda þrýst hné sínu á háls unga manns­ins, þar sem hann lá hand­járnaður, með þeim af­leiðing­um að maður­inn hlaut mar­bletti aft­an á háls­in­um.

Ungi maður­inn var ekki beðinn um nafn né var neitt skráð um at­vikið í bók­um lög­regl­unn­ar.

Í dómn­um seg­ir, að lög­reglu­menn­irn­ir, sem kallaðir voru að skemmti­staðnum, hafi verið þar í brýn­um er­ind­um. Vitni séu á einu máli um að ungi maður­inn hafi þvælst ölóður fyr­ir lög­reglu­mönn­un­um þar fyr­ir utan og hindrað störf þeirra. 

Fram sé komið í mál­inu, að um helg­ar þurfi lög­regl­an oft að neyta þess úrræðis að flytja vand­ræðamenn úr miðbæn­um í Reykja­vík og sleppa þeim á öðrum stað eft­ir stutt­an akst­ur til þess að af­stýra frek­ari vand­ræðum.  Hljóti það óhjá­kvæmi­lega að hafa það í för með sér að viðkom­andi sé svipt­ur frelsi sínu um stund, m.ö.o. hand­tek­inn. Seg­ist dóm­ur­inn álíta slík­ar aðgerðir rúm­ast inn­an þeirra heim­ilda sem lög­regla hafi.

Þá seg­ir í niður­stöðu dóms­ins, að í þrengsl­un­um í lög­reglu­bíln­um hafi lög­reglumaður­inn hafi átt fullt í fangi með  að hemja óðan mann, sem braust um og sparkaði frá sér. Þá hafi lög­reglumaður­inn þurft að  halda sér vegna ferðar­inn­ar á bíln­um. Einnig hafi tak lög­reglu­manns­ins á unga mann­in­um ekki haft í för með sér hættu­leg­an áverka og loks sé ekki úti­lokað, að ungi maður­inn hafi að ein­hverju leyti valdið áverk­an­um sjálf­ur með um­brot­um sín­um.

Því sé ósannað að lög­reglumaður­inn hafi beitt hnénu af svo miklu afli að hann telj­ist, við þess­ar kring­um­stæður, ekki hafa gætt lög­mætr­ar aðferðar við það að halda unga mann­in­um.  

Lög­reglumaður neit­ar harðræði

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka