Umferðaróhapp varð á Austurvegi á Selfossi um hálfsex í kvöld er ökumaður missti stjórn á bíl sínum sem lenti á ljósastaur.
Ökumaður og farþegi sluppu við meiðsl utan minniháttar hnjask að sögn lögreglunnar á Selfossi. Bíllinn, sem er fólksbíll, er hins vegar mikið skemmdur. Bleyta var á veginum er óhappið átti sér stað.