Atvinnuleysið ekki ásættanlegt

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mbl.is/Árni Sæberg

„Bág staða atvinnulífsins, hallærisrekstur fjölmargra fyrirtækja, afturför í velferðarmálum, fækkun starfa og 10% atvinnuleysi eru ekki ásættanleg framtíðarsýn að mati Samtaka atvinnulífsins. Þess vegna verður að grípa til aðgerða," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna, sem hafa lagt fram víðtæka stefnumörkun undir heitinu „Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010".

Vilhjálmur segir fyrirliggjandi efnahagsspár gera ráð fyrir um 2% árlegum hagvexti á næstu árum. Þetta sé of lítið til þess að efnahagslífið nái sér á strik og fyrirtæki ráði fólk í ný störf þannig að atvinnuleysi minnki og lífskjör batni. Svo lítill hagvöxtur muni einnig kalla á áframhaldandi vandræði í ríkisbúskapnum og veikingu velferðarkerfis þjóðarinnar. Slík framtíðarsýn sé ekki ásættanleg að neinu leyti.

„Reynsla undanfarinna áratuga sýnir að við hverja prósentu hagvaxtar fjölgar störfum um rétt innan við ½%. Gangi spár um 2% meðalhagvöxt eftir mun fjölgun starfa ekki halda í við fjölgun fólks á vinnumarkaði og atvinnuleysi aukast enn. Af þeirri ástæðu verður að koma í veg fyrir að þessar spár rætist og stuðla að meiri hagvexti og um leið fleiri störfum," ritar Vilhjálmur ennfremur.

Vilhjálmur bendir á spá Seðlabankans um að efnahagslífið dragist saman um 3-4% á þessu ári og að kreppan haldi áfram. Þetta séu döpur tíðindi í ljósi þess að allir möguleikar eigi að vera til þess að Ísland komist upp úr kreppunni í ár og grunnur verði lagður að endurheimt starfa og lífskjara. Útflutningur á vörum og þjónustu ætti að geta aukist mun meira en Seðlabankinn miðar við og fjárfestingar í atvinnulífinu ættu að geta hleypt nýjum krafti í efnahagslífið.

Sjö ár að ná fyrri lífskjörum

„Leiðin út úr kreppunni hlýtur að vera sú að atvinnulífið fjárfesti, fyrst og fremst í útflutningsgreinum. Þannig verða til ný störf á uppbyggingartímanum og varanleg störf til lengri tíma. Mikilvægt er að skapa ný störf við útflutning vöru og þjónustu sem þola að greiða samkeppnishæf laun til framtíðar þannig að núverandi ástand með skert lífskjör og atvinnuleysi verði tímabundið," segir Vilhjálmur.

Hann segir hagvöxt þurfa að vera 5% á ári að meðaltali á árunum 2011 - 2015 til þess að atvinnuleysi hverfi og ný störf verði til fyrir þá sem koma inn á vinnumarkaðinn. Þá myndu skapast 15-17 þúsund ný störf á tímabilinu og komið yrði í veg fyrir stórfelldan brottflutning fólks af landinu. Þetta sé æskilegasta markmiðið fyrir endurreisn íslensks efnahagslífs og þýði að það muni samt taka Íslendinga sjö ár að ná fyrri lífskjörum og velferð.

Leiðara Vilhjálms í fréttabréfi SA má nánar lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert