Skömmu fyrir klukkan tvö í nótt var tilkynnt um mikinn reyk við fyrirtækið Skinnfisk í Sandgerði. Lögregla og slökkvilið fóru á vettvang. Mikill eldur logaði í fiskikörum sem stóðu upp við húsið.
Nokkrar skemmdir urðu á húsinu, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum, og m.a. sprungu fjölmargar rúður vegna hita. Slökkvilið náði fljótlega tökum á ástandinu. Grunur er um íkveikju.