Krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána

Arion banki hefur ákveðið að krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka ársins 2010. Það er óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum og jafnframt áréttar bankinn, vegna nýlegs dóms Héraðsdóms Reykjavíkur um  gengistryggð bílalán, að fái greiðendur erlendra lána sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, missa þeir ekki þann rétt þó þeir hafi skuldbreytt lánum sínum yfir í íslenskar krónur.

Yfir eitt þúsund viðskiptavinir Arion banka hafa þegar nýtt sér lausnir bankans til höfuðstólslækkunar. Þessir viðskiptavinir og þeir sem koma til með að nýta sér lausnir bankans, hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti, komist Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gengistryggð lán séu ólögleg, segir Arion banki.

Arion banki hefur einnig ákveðið að krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna

húsnæðislána til loka ársins 2010. Það er óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend

lán.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert