Förgun pólsks tóbaks stöðvuð

Flutningabíll kemur með tóbak til förgunar.
Flutningabíll kemur með tóbak til förgunar. mbl.is/Árni Sæberg

Tæting og förgun tóbaks frá Póllandi hefur verið stöðvuð að beiðni Umhverfisstofnunar. Mun stofnunin hafa samband við yfirvöld í Póllandi vegna málsins en hugsanlegt er að tóbakið verði endursent. Umhverfisstofnun telur að staðið hafi verið ólöglega að innflutningi tóbaksins.

Sagt var frá því í Morgunblaðinu í síðustu viku, að nú stæði yfir tæting og förgun á 20 gámum af sígarettum, sem hefðu verið fluttar til landsins frá Póllandi. Í fréttinni kom fram að aldrei hefði staðið til að selja tóbakið hér á landi því hingað hefði það verið flutt í þeim eina tilgangi að farga því. Umhverfisstofnun hóf athugun málsins þar sem óheimilt er að flytja úrgang til förgunar hér á landi nema fyrir liggi tilskilin leyfi.

Stofnunin segir, að meginreglan varðandi förgun úrgangs sé, að förgun fari fram í því landi þar sem úrgangurinn fellur til. Er tilgangurinn m.a. að koma í veg fyrir að fátæk ríki verði að förgunarstöðum fyrir auðug ríki. Óheimilt er að flytja úrgang milli landa til förgunar nema að fengnum tilskildum leyfum. Heimilt er að flytja endurvinnanleg efni á milli landa til endurvinnslu.

Við athugun Umhverfisstofnunar fékkst staðfesting hjá Rolf Johansen & Co ehf., sem stóð að þessum innflutningi, að tóbakið hefði verið flutt til landsins í þeim eina tilgangi að farga því. Umhverfisstofnun telur því ljóst að áður en ráðist var í innflutninginn hafi legið fyrir að um úrgang væri að ræða, en ekki vöru, og því hafi verið skylt að tilkynna innflutninginn til stofnunarinnar og óska eftir leyfi hennar. Þar sem stofnuninni barst ekki tilkynning um innflutninginn og veitti ekki leyfi fyrir honum telur stofnunin að hér hafi verið um að ræða ólögmætan flutning úrgangs til landsins.

Um var að ræða gallaða framleiðslu á vörum tóbakfyrirtækisins JPI í Póllandi en JPI framleiðir m.a. Winston, Camel og Salem. Sígaretturnar sem fluttar voru til Íslands eru þó væntanlega af ódýrari gerð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert