Um 700 hafa greitt atkvæði í utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna Icesave-samninganna sem fram fer hjá sýslumanninum í Reykjavík. Atkvæðagreiðslan fer fram í Laugardalshöll.
Einnig hafa borist til sýslumanns atkvæði til dæmis erlendis frá og í heildina eru þau atkvæði sem borist hafa orðin 767. Kjörsóknin er misjöfn, um kvöldmatarleytið í gær höfðu um 30 manns greitt atkvæði það sem af var degi.