Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, og Páll Hreinsson, sem situr í rannsóknarnefnd Alþingis, hittu formenn stjórnmálaflokkanna á fundi í forsætisráðuneytinu í kvöld.
Hvorugt vildi tjá sig við fréttamenn þegar þau komu út af fundinum en rætt hefur verið um hvort ástæða sé til að fresta fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin sem á að halda 6. mars í ljósi óvissu um hvenær skýrsla rannsóknarnefndarinnar kemur út.