„Kaka ársins 2010“ er samsett úr dökkum súkkulaðibotni, hvítum botni, núggatmús og hjúpuð með dökkum Konsum orange súkkulaðihjúp. Höfundur hennar er Hilmir Hjálmarsson hjá Sveinsbakaríi.
Landssamband bakarameistara efndi nýlega til árlegrar keppni um „Köku ársins“. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn „Kaka ársins“. Keppnin var haldin í samstarfi við Nóa-Síríus.
Alls bárust 10 kökur í keppnina í ár.
Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um næstu helgi, konudagshelgina, og verður til sölu það sem eftir er ársins.
Dómarar í keppninni voru Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Jóhanna Gunnarsdóttir, matvælafræðingur hjá Nóa-Síríusi og Ásthildur Guðmundsdóttir kennari við bakaradeild Hótel og matvælaskólans.
Á morgun, föstudag, klukkan 16 mun Hilmir Hjálmarsson, höfundur kökunnar, afhenda Ingibjörgu Ragnarsdóttur, liðsstjóra karlalandsliðsins í handbolta, köku í virðingarskyni fyrir framlag hennar til góðs gengis landsliðsins í Evrópumeistaramótinu. Athöfnin fer fram í Sveinsbakaríi, Skipholti 50 b.